Hrafndís Tekla Pétursdóttir
Sálfræðingur
Sálfræðingur
Hrafndís Tekla veitir sálfræðiþjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Tekla hefur verið sjálfstætt starfandi á stofu síðan árið 2000. Tekla sinnir m.a. almennri vanlíðan, tilfinningalegum og geðrænum vanda, streitu og kulnun, samskiptaerfiðleikum ofl. Tekla býður einnig uppá fjölskyldu- og pararáðgjöf. Tekla hefur sérhæft sig í meðferð barna og ungmenna sem sýna áhættuhegðun af einhverju tagi (hegðunarvandi, sjálfsskaði, vímuefnavandi eða aðrar fíknir t.d. tölvu- og spilafíkn) og einnig meðferð fullorðna með vímuefna og/eða tvíþættan vanda (geðrænan- og neysluvanda). Fjarviðtöl fara fram gegnum Karaconnect sem samþykktur er af Landlæknisembætti.
Tekla hefur víðtæka reynslu í starfi sem sálfræðingur og hefur um áraraðir unnið að forvörnum og meðferðarmálum barna og ungmenna. Hún hefur starfað í teymi Sálfræðinganna síðan 2017. Samhliða stofu hjá Heilsuvernd og á sálfræði- og læknaþjónustunni Sól stundar hún einnig MA-nám í Trúarbragðafræðum við HÍ og er Yogakennari.
Hún lauk Diplómagráðu árið 1998 í klínískri sálfræði frá Þýskalandi við Heinrich- Heine háskólann. Hún var sálfræðingur meðferðaheimilisins Götusmiðjan sem var áfengis- og fíkniefnameðferð fyrir unglinga. Frá árinu 2008- 2016 starfaði hún við fjölskylduráðgjöf Foreldrahúss hjá félagasamtökunum Vímulaus Æska þar sem hún sinnti fjölskylduráðgjöf og meðferð barna og unglinga með hegðunar- og/eða fíkniefnavanda auk stuðningshópa og námskeiða fyrir börn og foreldra. Hún var einnig um þriggja ára skeið framkvæmdastjóri samtakanna. Tekla starfaði árið 2017- 2019 sem sálfræðingur umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Reykjavíkurborg og hefur því góða reynslu í starfi með flóttafólki. Hún hefur einnig starfsreynslu á geðdeild FSA, sem sálfræðingur á grunnskóla- og leikskólastiginu og í Ljósinu með krabbameinsgreindum og aðstandendum. Hún hefur þá setið í ýmsum stjórnum, nefndum og ráðgjafahópum er tengjast velferðarmálum og forvörnum ásamt stundakennslu við Háskóla Íslands. Tekla hefur auk þess sett upp meðferðaúrræði fyrir ungmenni í samstarfi við félagsmálaráðuneyti og barnaverndir og námskeið fyrir fagfólk um snemmtæka íhlutun í hegðunar- og vímuefnavanda unglinga.
Þú getur haft samband beint við Teklu í gegnum fyrirspurnarformið. Við leggjum okkur fram við að svara öllum fyrirspurnum innan 24 tíma.