Huldís tekur ekki við nýjum skjólstæðingum í bili.
Huldís Franksdóttir Daly
Huldís sinnir greiningu og meðferð fullorðinna.
Meðal helstu verkefna Huldísar eru reiðistjórnun og ákveðniþjálfun, meðferð tilfinningavanda og vanlíðunar, meðferð við lágu sjálfsmat og meðferð við kvíða og þunglyndi. Jafnframt sinnir Huldís fólki sem glímir við alvarleg veikindi, s.s. krabbamein og heilabilun og aðstandendur þeirra.
Huldís notar hugræna atferlismeðferð og atferlistilraunir í meðferð.
Huldís stundar doktorsnám við Háskólann í Reykjavík, þar sem hún vinnur að rannsóknum á líðan og meðferð krabbameinssjúklinga.
Áður en Huldís útskrifaðist sem sálfræðingur hafði hún starfað sem þroskaþjálfi í mörg ár, lengst af við atferlisþjálfun barna með einhverfu og við ráðgjöf. Huldís hefur því langa reynslu af störfum með fólki með flókinn vanda.
Once a Sex Offender – Always a Sex Offender? MSc lokaverkefni: Háskólinn í Reykjavík.
Mental simulation of Action: Does Working Memory Capacity Affect Mental Simulation
When Solving a Meaningful Task with an Ultimate Goal? BSc lokaverkefni: Háskólinn í Reykjavík.
Sendu Huldísi skilaboð
Þú getur haft samband beint við Huldísi í gegnum fyrirspurnarformið. Við leggjum okkur fram við að svara öllum fyrirspurnum innan 24 tíma.