Svefnleysi (e. insomnia) er ein röskun í flokki svefnraskana. Svefnleysi einkennist af erfiðleikum við að sofna, halda sér sofandi og/eða að vakna mjög snemma á morgnana og geta ekki sofnað aftur. Einstaklingar með svefnleysi eru oft þreyttir og orkulausir á daginn, einnig fylgir oft erfiðleikar með einbeitingu og athygli, jafnvel í svo miklu mæli að það fer að hafa áhrif á vinnu og önnur svið lífsins.
Rannsóknir sína að um 33% fullorðinna hafa upplifað einkenni svefnleysis, 10-15% hafa upplifað truflarnir á daginn vegna þessa. 6-10% einstaklinga uppfylla greiningarskilmerki svefnleysis sem gerir Svefnleysi að algengustu tegund svefnraskana.
Einkenni svefnleysis:
- Erfiðleikar við að sofna á kvöldin
- Liggja andvaka löngum stundum
- Vakna oft upp á nóttunni
- Vakna snemma á morgnana og geta ekki sofnað aftur
- Vera ekki úthvíld/ur eftir svefn
- Vera þreytt/ur og orkulaus á daginn
- Eiga erfitt með að einbeita sér að verkefnum
- Pirringur
Orsakir Svefnleysis
Engin ein orsök liggur að baki svefnleysi, en margir þættir geta aukið líkurnar á því að einstaklingur þrói með sér svefnleysi, til dæmis:
- Streita og kvíði
- Aðrar svefnraskanir
- Geðraskanir
- Líkamleg vandamál og sjúkdómar
- Lyf eða vímuefni
- Lífstílsþættir
Sýnt hefur verið fram á að langvarandi svefnleysi eykur áhættu á vöðvabólgu, þunglyndi, hjartsláttartruflunum og almennt lægri lífsgæðum. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að hægt er að takast á við svefnleysi. Svefnleysi á ekki og má ekki vera sjálfsagður hlutur eða eitthvað sem að við sættum okkur við.
Meðferð
Íslensku og bresku landlæknisembættin mæla bæði með hugrænni atferlismeðferð við svefnröskunum (HAM-S) sem fyrstu meðferð við svefnleysi. Ítrekað hefur verið sýnt fram á góðan árangur í meðferð við svefnleysi með HAM-S. Þrátt fyrir það eru Íslendingar Norðurlandameistarar í notkun svefnlyfja.
HAM-S er í flestum tilvikum tiltölulega fljótvirk og árangursrík meðferð. Í meðferðinni felst meðal annars stjórn á svefnaðstæðum, endurskilyrðing svefnherbergis og rúms við svefn, svefnrútínur og svefnskerðingu.
Með réttri meðferð er hægt að komast yfir svefnleysi eða ná stjórn á svefninum í stað þess að hann stjórni þér.